Fréttir
Upplýsingasíða fyrir sandkassa fyrir gervigreind í heilbrigðisþjónustu
Persónuvernd hefur nú opnað sérstaka upplýsingasíðu á vef
sínum vegna fyrirhugaðs sandkassaverkefnis fyrir gervigreind í
heilbrigðisþjónustu. Á upplýsingasíðunni er að finna allar helstu upplýsingar
um verkefnið, markmið þess og þær kröfur sem gerðar eru til umsækjenda.
Opnað verður fyrir umsóknir þann 28. febrúar næstkomandi og verður þá umsóknareyðublað birt á vefnum. Umsóknarfrestur verður tvær vikur.
Upplýsingasíða fyrir sandkassa fyrir gervigreind í heilbrigðisþjónustu.