Opnun starfsstöðvar Persónuverndar á Húsavík
Síðastliðið vor var tekin í notkun ný starfsstöð Persónuverndar á Húsavík en formleg opnun hennar fór fram í dag, 9. september.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra og Helga
Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar, opnuðu starfsstöðina formlega og fluttu
ávörp.
Af því tilefni sagði dómsmálaráðherra:
Persónuvernd er nauðsynleg til að tryggja hagsmuni einstaklingsins í lýðræðissamfélagi. Möguleikar tækninnar mega ekki trompa rétt okkar til friðhelgi einkalífsins. En það eru líka möguleikar tækninnar sem gera okkur kleift að setja niður störf án staðsetningar.
Forstjóri Persónuverndar sagði jafnframt:
„Við höfum fundið fyrir miklum velvilja gagnvart þessu verkefni bæði í fjórðungnum og utan hans. Ég bind vonir við að hægt verði að tryggja áframhaldandi fjármögnun verkefnisins, til hagsbóta bæði fyrir Persónuvernd og landsbyggðina.“
Uppsetning starfsstöðvarinnar hefur farið fram í góðu samstarfi við embætti sýslumannsins á Norðurlandi eystra en útbúin hefur verið aðstaða fyrir starfsmenn Persónuverndar á aðalskrifstofu embættisins á Húsavík.
Flutti Svavar Pálsson, sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, ávarp af því tilefni. Í máli Svavars kom fram að þetta samstarf sýni að krefjandi opinber störf, þar sem sérþekkingar og háskólamenntunar er krafist, sé auðveldlega hægt að staðsetja á landsbyggðinni, þegar víðsýni og stafrænar lausnir fari saman.