Nýtt skipurit Persónuverndar samþykkt
Þann 23. ágúst sl. var samþykkt hjá Persónuvernd nýtt skipurit stofnunarinnar auk þess sem verklagi var breytt, til að takast betur á við þann fjölda mála sem Persónuvernd berast.
Samkvæmt
skipuriti Persónuverndar er um þrjú meginsvið að ræða, auk kjarnastarfsemi,
þ.e. eftirlit, úttektir og erlent samstarf og fræðsla. Kjarnastarfsemi lýtur að
starfi forstjóra, rekstri stofnunarinnar og skjalavörslu.
Sviðsstjóri
eftirlits er Helga Sigríður Þórhallsdóttir.
Sviðsstjóri
erlends samstarfs og fræðslu er Vigdís Eva Líndal.
Sviðsstjóri
úttekta er Þórður Sveinsson.
Þá hefur Persónuvernd nú skilgreint helstu málaflokka sem falla undir eftirlit stofnunarinnar – með hliðsjón af því að öll vinnsla persónuupplýsinga, hjá fyrirtækjum, opinberum aðilum, sveitarfélögum og öðrum, fellur undir eftirlit stofnunarinnar.
Helstu málaflokkar hér undir eru: rafrænt eftirlit og vöktun, tækni og nýsköpun, samfélagsmiðlar og markaðssetning, rannsóknir og leyfi, heilbrigðismál, börn og viðkvæmir hópar, fjármál, réttindi einstaklinga, vottanir og hátternisreglur, reglusetning og lagaumhverfi, netöryggi, löggæsla, fjölmiðlun og dómstólar.