Norrænar persónuverndarstofnanir halda áfram nánu samstarfi
Norrænu persónuverndarstofnanirnar hafa lengi haft með sér samvinnu meðal annars með því að vinna saman að stefnumótun á sviði eftirlitsaðgerða og deila þekkingu og reynslu á milli stofnananna. Árlegur fundur þeirra var haldinn í Reykjavík dagana 14.-16. maí. Á fundi ársins fóru fram hnitmiðaðar umræður um sameiginleg áform um eftirlit og upplýsingaskipti ásamt aukinni samvinnu norrænu persónuverndarstofnanna.
Á fundinum undirrituðu forstjóri Persónuverndar og forstjórar systurstofnana á Norðurlöndum með sér yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf. Tilgangur yfirlýsingarinnar er að styrkja enn frekar norræna samvinnu.
Norrænu persónuverndarstofnanirnar samþykktu meðal annars eftirfarandi samstarf og markmið:
- Forstjórar norrænu persónuverndarstofnanna ákváðu að halda fjarfundi sín á milli ársfjórðungslega til þess að ræða störf sín og sameina krafta sína við gerð leiðbeininga og skipulagningu úttekta og frumkvæðisathugana.
- Persónuverndarstofnanirnar samþykktu að halda áfram að skoða möguleika þess að nota áhættu- og gagnamiðaða aðferð við stefnumótun úttekta og frumkvæðisathugana, sem og í evrópsku samstarfi með það að markmiði að deila þekkingu og hagnýtri reynslu.
- Ákveðið var að koma á fót vettvangi fyrir persónuverndarstofnanirnar fyrir greiningu og áætlanagerð til að auka áhrif starfa þeirra.
- Persónuverndarstofnanirnar ákváðu að auka upplýsingaflæði sín á milli um meðferð öryggisbresta.
Reykjavíkuryfirlýsingin á pdf sniði.