Fréttir
43. fundur EDPB
43. fundur ráðsins fór fram 15. desember 2020 en vegna Covid-19 faraldursins hafa fundir Evrópska persónuverndarráðsins farið fram í gegnum fjarfundabúnað frá því í apríl.
Að venju voru fjölmörg
atriði á dagskrá ráðsins, en þau helstu voru:
- Stefna EDPB fyrir árin 2021-2023 .
- Yfirlýsing vegna loka aðlögunartímabilsins vegna útgöngu Breta úr ESB og bréf til upplýsinga varðandi flutning persónuupplýsinga til Bretlands.
- Leiðbeiningar um takmarkanir á réttindum hinna skráðu skv. 23. gr. persónuverndarreglugerðarinnar.
- Yfirlýsing um vernd persónuupplýsingasem unnar eru í tengslum við peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
- Álit á drögum að ákvörðun vegna bindandifyrirtækjareglna fyrir Equinix .
Þá voru eftirfarandi leiðbeiningar samþykktar endanlega eftir samráð: