Auglýsing nr. 1027/2020 um gjaldskrá vegna eftirlits Persónuverndar með vinnslu persónuupplýsinga
GJALDSKRÁ
vegna eftirlits Persónuverndar með vinnslu persónuupplýsinga.
1. gr.
Gildissvið.
Gjaldskrá þessi gildir um greiðslu kostnaðar sem hlýst af eftirliti með því að ábyrgðaraðilar fullnægi skilyrðum laga nr. 90/2018, um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, og reglna sem settar eru samkvæmt þeim eða einstökum fyrirmælum, sbr. VII. kafla þeirra laga.
2. gr.
Tímagjald.
Innheimta skal gjald vegna kostnaðar sem hlýst af aðkeyptri sérfræðiþjónustu sem nauðsynleg er vegna eftirlits Persónuverndar. Fjárhæð gjaldsins fyrir hverja unna klukkustund skal að hámarki vera sem hér segir:
a. | Sérfræðingur á sviði tölvurannsókna | kr. 29.900 | |
b. | Sérfræðingur á öðru sviði1 | kr. 21.000 |
Fjárhæðir samkvæmt 1. mgr. innihalda ekki virðisaukaskatt.
Fjárhæðir samkvæmt 1. mgr. skulu breytast þann 1. janúar ár hvert í samræmi við breytingar á vísitölu neysluverðs. Grunnvísitala er 485,1 (vísitala ágústmánaðar 2020).
3. gr.
Ferðakostnaður.
Innheimta skal gjöld vegna kostnaðar sem hlýst af greiðslum fyrir akstur og dagpeninga til aðkeyptra sérfræðinga samkvæmt 2. gr. Fjárhæð gjalda skal vera í samræmi við reglur ferðakostnaðarnefndar fjármála- og efnahagsráðuneytisins sem í gildi eru á hverjum tíma.
4. gr.
Fjöldi gjaldeininga.
Gjaldeiningar samkvæmt 2. og 3. gr. skulu ákvarðaðar og innheimtar samkvæmt reikningi sérfræðinga, þó með þeirri undantekningu sem greinir í 2. mgr. 5. gr.
5. gr.
Upplýsingaskylda og hámarksfjárhæð gjalds.
Með rökstuddum hætti skal Persónuvernd tilkynna ábyrgðaraðila um þörf á aðkeyptri sérfræðiþjónustu samkvæmt 2. gr., svo fljótt sem stofnunin verður þess áskynja.
Í tilkynningu samkvæmt 1. mgr. skal tilgreina sundurliðað hámarksgjald sem lagt verður á ábyrgðaraðila samkvæmt gjaldskrá þessari. Í sundurliðun skal gerð grein fyrir áætluðum fjölda vinnustunda sérfræðings, tímagjaldi samkvæmt 2. gr., og áætluðum ferðakostnaði samkvæmt 3. gr.
6. gr.
Innheimta.
Persónuvernd innheimtir gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari.
7. gr.
Gildistaka og lagaheimild.
Gjaldskrá þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 40. gr. laga nr. 90/2018, tekur þegar gildi.
Dómsmálaráðuneytinu, 21. október 2020.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir.
Haukur Guðmundsson.
1 Sbr. 1. gr. auglýsingar nr. 822/2024 um breytingu á gjaldskrá vegna eftirlits Persónuverndar með vinnslu persónuupplýsinga nr. 1027/2020.